Það var þvílíkt djamm hjá mér síðasta föstudag, og alveg ótrúlegt en satt en þá var ég ekki ein um skemmtunina. Stuðið var undir merkjum freyjanna, hinn árlegi jólafagnaður. Það var á veitingastaðnum 'Vue'. Alveg prýðilegur staður, ekki ódýr, en ég var sem betur fer nýbúin að fá útborgað svo að þetta slapp allt saman. Svo var farið niður í bæ, Á 'Chicago Rocks'. Ég gjörsamlega hrundi í það, rosalega gaman. Allavega hjá mér, kannski eins gaman fyrir þá sem að voru í kringum mig... Svo var bara djammað og ég man ekki alveg hvað ég var að gera allan þennan tíma sem að við vorum þarna inni en ég man að ég fór heim og því miður man ég vel eftir 'the day after the night before', úff, frekar erfiður dagur. Fór aðeins í bíltúr og reyndi að kaupa þynnkumat. Það er erfitt að gera slíkt hérna, sakna mikið 'Aktu taktu' og 'Staldursins'. Kom heim og sofnaði á sófanum með allt í gangi. Sem að var ágætt því að þegar að ég vaknaði snemma Í morgun gat ég farið beint í að horfa á barnaefnið í sjónvarpinu. Það hefur breyst mikið frá þvÍ að ég var ung. Er alveg búin að sjá það út að þetta er farið að vera fullorðið vænt svo að nú getur maður haft ánægjulega stund með barninu yfir barnaefninu um helgar. Smá svona quality time yfir imbanum.
Talandi um imbann, gæðin eru non stop, verst að ég hafi ekki verið á djamminu í gær og sé með þynnkuna núna, alveg prima kandidati í þynnkumyndum að byrja. Danielle Steel myndin 'Fine Things', Úff jukk, Þetta er hryllingur!! Sætari en sykur.
Best að slökkva á imbanum og fara að vaska upp og skúra. Byrja á jólahreingerningunum.
sunnudagur, nóvember 30, 2003
miðvikudagur, nóvember 26, 2003
Hæ hó, alltaf er ég jafndugleg að blogga. Nú er runninn upp miðvikudagur, og hann er reyndar alveg að kveldi kominn. Ég hef nú ekki frá miklu að segja. Það er bara búið að vera nóg að gera í vinnunni og ég er að reyna að vera dugleg - hahaha. Svo er planið í kvöld svo ægispennandi að ég get varla verið að eyða tíma í að skrifa neitt, það er nefnilega The Bodyguard í sjónvarpinu í kvöld. Þannig að nú ætla ég að hætta þessu í bili og læt vita af mér síðar.
